If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Friday, July 01, 2005
Nýtt upphaf
Aldrei framar mun verða bloggað á þessari síðu.
Ég vil þakka þeim sem lásu,
góðar stundir.

Ég blogga nú í Kommúnu. Kíkið á það.

Posted at 3:10 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Thursday, June 30, 2005
"Veistu hvað ég var að heyra, á ég að segja þér..."
Mesta rugl sem ég hef heyrt lengi ómaði í eyrum mínum þegar ég og Jórunn vorum á leiðinni í áðurnefnda sundferð um daginn. Það var ekki Jórunn sem stóð fyrir því, heldur var ég með kveikt á útvarpinu á meðan ég keyrði og var að hlusta á Kastljósþáttinn þar sem Eiríkur Jónsson slúðurberi Hér og Nú og Helga Vala á Talstöðinni áttust við í umræðu um hvað má setja í blöðin og hvað ekki. Eiríkur Jónsson verður þess heiður aðnjótandi að vera héðan í frá titlaður "mesta fífl sem ég hef bloggað um síðan ég missti mig yfir formanni frjálshyggjufélagsins sem vill leyfa vændi, fyrir réttu ári", ef einhver man eftir reiðibloggum síðan þá. Eiríkur gerði sitt allra allra besta til að tala alltaf ofaní Helgu þegar hún var að setja fram rök sín, og svo dirfist hann að kalla hana dóna og hræsnara þegar hún benti honum kurteisislega á staðreyndirnar - að hann væri að bulla! Það hefði mátt halda að hann væri að lesa upp úr klisjuorðabók eftir Hannes Hólmstein, það kom nákvæmlega ekkert almennilegt út úr kallræflinum.
Ég ætla ekki að taka upp hanskan fyrir Bubba, hann er eins og réttilega hefur verið bent á, búinn að selja þjóðinni sjálfan sig fyrir löngu. En börnin hans eiga ekki að þurfa að þola þetta. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ég er afar hress með ákvörðun Iceland Express að selja ekki svona mannskemmandi óþverra. Ég vil einnig sérstaklega benda á bakþanka Jóns Gnarrs um slúður í fréttablaðinu í dag. Frábær pistill.

Einhvers staðar verður að draga mörkin á milli friðhelgi einkalífsins og fréttamennsku á Íslandi. Ég legg til að það verði gert nokkrum kílómetrum fyrir aftan þann stað sem við erum stödd á nú.



E.S. Lenti í lélegasta og jafnframt fyndnasta sölumanni sem ég hef á ævinni heyrt í, núna áðan. Hann hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi skipta frá símanum yfir í OgVodafon. Ég sagði nei. Hann sagði ok og bless. Ekki flóknara en það. Nettur gæi...

Posted at 7:55 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Tuesday, June 28, 2005
"I don't know, I'm just að girl!" - Malibu Stacy (Simpsons)
Steinunn gengur inn i herbergi litlu systur sinnar og glápir á plakat af ískyggilega lítið klæddri BRATZ-dúkku. Hún horfir á níu ára gamla systur sína og reynir að gubba út úr sér einhverju gáfulegu til að koma fram boðskapi sínum:
„Eh, Jórunn... þú veist að það er ekkert sniðugt að vera í svona stuttum bol... ehm, þegar maður er ekki stór" (hugsar: „Vel sagt Steinunn. Nei!")
Jórunn: „Nei, mér finnst magabolir heldur ekki flottir.
Steinunn (og henni er mjög létt): „Gott gott... og heldur ekki svona stutt pils...?"
Jórunn: „Ja, maður verður alla vega að vera í sokkabuxum. Og svona stórir skór eru heldur ekki flottir."

Til að verðlauna systur mína fyrir að ætla ekki að klæða sig hórulega alveg strax fór ég með henni í sund í dag, keypti handa henni ís og gerði handa henni samloku. Í sundinu benti hún mér á að svona g-strengur eins og ég væri í væri ekki mjög flott. Þar kom vel á vondann...

Posted at 1:29 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Monday, June 27, 2005
Sódóma
Ég hef yfirgefið Sódómu og haldið á heimaslóðir. Helgin var áhugaverð, skemtileg og ógnvekjandi. En aðallega full af væntumþykju og vináttu ásamt slatta af rigningu.
Gist var á Njálsgötunni hjá Helgu báðar næturnar (þó mér tækist að sofna á tveimur öðrum stöðum. Hvernig, skulum við ekki fara nánar útí). Hins vegar var byrjað á því að fara í Kringluna og sleppa sér í tónlistarinnkaupum. Keypti mér nýjustu diskana með Gorillaz og Coldplay, Demon Days og X&Y, Rearviewmirror (greatest hits 1991-2003) með Pearl Jam og Original Cast Recording - The Phantom of the Opera. Keypti líka Francis the mute með The Mars Volta fyrir Sindra, með það fyrir augum að stela disknum af honum oft og mörgum sinnum. Ég gerði einnig heiðarlega tilraun til að kaupa mér buxur. Komst í framhaldi að því að ég er afbrigðileg, þar sem ég vil ekki ganga í buxum sem hylja ekki einu sinni skapahárin, og það virðast ekki vera til öðruvísi buxur í fataverslunum Reykjavíkur. Keypti mér í staðinn einn bol.
Á laugardaginn labbaði ég upp og niður Laugarveginn í úrhellisrigningu og lopapeysu. Hún varð blaut og hárið á mér fallega liðað, sem sagt dökkar hliðar og bjartar hliðar. Keypti mér peysu í Nonnabúð, húfu í rauðakross-búðinni, Ok Computer með Radiohead í 12 tónum og buxnaleitin mikla endaði á eina rétta staðnum... í vinnufatabúðinni. Já já, ég er bóndi. En ég hyl þó alla vega á mér rassgatið!
Svo var heilsað upp á Frey, Auði og Freyju Sigrúnu. Freyja varð fyrst ekkert sátt við að vera trufluð svona dónalega í miðri mjólkurgjöf, en hrestist fljótt. Hún gubbaði á mömmu/ömmu sína en var hin ánægðasta hjá mér. Feis, haha :)
Á föstudagskvöldinu var haldið villt þriggja manna partí á Njálsgötunni. Svipað var upp á teningnum á laugardagskvöldinu, nema að ég var edrú, við bættist félagsskapur Erlu og gleðskapurinn barst út á stræti borgarinnar þar sem dyraverðir miðborgarinnar reyndust mér vel. Af þeim þremur skemmtistöðum sem ég prófaði, þá vinnur Kaffibarinn fyrir að vera flottur staður. Prikið er ágætt, en Grand rokk er sveittur og furðulegur staður. Helga hitti samt Eirík Hauks þar og heilsaði honum eins og þau væru aldavinir. Þau eru bæði nett. Reyndar var ég ekki lengi í bænum sökum þreytu. Tek þetta allt saman með trompi næst.
IMG_6214copy.jpgIMG_6226copy.jpgIMG_6215copy.jpg
Þessar flottu myndir tók Nína í gærkvöldi, vona að hún myrði mig ekki svefni þó ég birti þær hér. Vil nota tækifærið og þakka henni og Helgu fyrir helgina.
Meira síðar. Góða nótt.

Posted at 12:30 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Monday, June 20, 2005
Slæm hugmynd
Í fréttum 16. júní: Breska lögreglan óttast að börnum frá Afríku sé smyglað til landsins til þess að fórna þeim við trúarlegar athafnir. Fyrr í þessum mánuði voru 2 afrískar konur dæmdar fyrir að pynta átta ára gamalt munaðarlaust barn frá Angóla og hafa ætlað að henda henni í sjóinn, þar sem þær trúðu því að barnið væri haldið illum anda. Breska löggan hefur ennfremur enn ekki borið kennsl á lík drengs sem fannst fyrir fjórum árum höfuðlaust á reki í ánni Thames, talið er að hann hafi verið myrtur í tengslum við trúarlegar athafnir.

Í fréttum í fyrradag: Heittrúarmenn mótmæltu ákaft á meðan Massouma al-Mubarak sór embættiseið til þingsetu sem fyrsta konan til að setjast á þing í Kúveit... aðeins nokkrum vikum eftir að konur í landinu öðluðust kosningarétt.

Í fréttum í gær: hálf milljón mótmælti auknum réttindum samkynhneigðra á Spáni. Fremstir í flokki voru rómversk-kaþólskir prestar og biskupar.

Í fréttum í dag: Rúmensk nunna lést eftir að hún hafði verið bundin við kross, handklæði troðið upp í munninn á henni og hún skilin eftir í þrjá daga í köldu herbergi í nunnuklaustri. Hún fékk ekki vatn né mat allan tímann. Hún þjáðist víst af geðklofa, en prestur og nokkrar nunnur bundu hana við krossinn til að reka út þann illa anda sem þau voru viss um að hún væri haldin.



Það sem mun væntanlega gerast á morgunn:
Þúsundir manna munu deyja eða þjást af trúarlegum ástæðum. Konur munu verða umskornar, börnum misþyrmt, nokkrir munu ákveða að sprengja sig og aðra upp í loft, samkynhneigðir munu afneita sjálfum sér, fólk mun verða kúgað og meitt, því nauðgað og það drepið.

Ég er alltaf að átta mig betur og betur á því...

hvað trúarbrögð eru rosalega slæm hugmynd.



E.S. Lagið: Son et Lumiere með The Mars Volta
E.E.S. Bókin: Heimsljós eftir Halldór Laxness
E.E.S. Gaman: Stefnan tekin á Reykjavík city á föstudaginn.

Góða nótt.

Posted at 10:53 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Sunday, June 19, 2005
neyðarkall, neyðarkall!
Það er komin ný lína í vinnuklæðnaði í KS Varmahlíð. Síðkjólalínan - alla vega fyrir þá sem heita Steinunn og eru síðust til að ná sér í föt. Hinir fá boli í þokkalega eðlilegri stærð. En vinnufötin mín eru sem sagt svo stór að ég gæti komið öllum íbúum Lundar fyrir í þeim með mér sjálfri. Og rauð. Einmitt minn litur. Nei.
Í dag mætti ég klukkan 9. Ég stóð í 7 tíma og afgreiddi og settist aldrei á þeim tíma. Borðaði eina kleinu. Svo var vaktin búin, ég settist niður í fimm mínútur og fékk mér aðra kleinu. Vann svo í aukaklukkutíma. Svo fékk ég mér STÓRAN ÍS á kostnað kaupfélagsins.
Ég brilleraði í dag, henti óafgreiddum pöntunum óvart og talaði reiprennandi ensku við Íslendinga. Góð Steinunn. Ég stefni ótrauð á að verða starfsmaður mánaðarins! Ætli ég endi líka ekki uppi sem eini starfsmaðurinn, þar sem samstarfsfélagar mínir eru iðnir við að afsaka sig frá vinnu með því að fara í hjartaþræðingu eða grípa jafnvel til róttækra aðgerða eins og að flýja til Grímseyjar (já, þetta er svona mögnuð vinna...) Megnið af hinum samstarfsmönnunum mæta svo annað hvort þunnir eða bara mæta ekki. Ég elska vinnuna mína. Nei.

Ég nenni ekki út að hlaupa í kvöld.

Plúsar: hmmmm... Lost er í sjónvarpinu annað kvöld?

SOS!!!!!

E.S. Maður vikunnar: Kristinn H. Gunnarsson, hann er svo svalur!
E.E.S. Ég er kannski soddans einfeldingur, en ég velti því fyrir mér af hverju ég sé alltaf að heyra fréttir af því að verið sé að rífa hús í Ísrael/Palestínu. Hvað er með það að rífa sífellt niður húsin, bara af því að fólk flyst á brott? Eru húsin byggð til að endast bara nokkur ár og þarf þá að rífa þau? Getur fólk ekki búið í þessum húsum, jafnvel þótt að fólk sem aðhyllist önnur trúarbrögð hafa búið þar áður (er ekki bara hægt að þrífa ágætlega áður en maður flytur inn?) Eitthvað hefur gleymst að uppfræða mig, því ég skil þetta ekki alveg. Nema þetta sé bara svona venjulega heimskulegt, sem gæti alveg verið...

Posted at 10:59 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Friday, June 17, 2005
Leikhús sem fær mann til að hugsa
Var að fylgjast með stórskemmtilegri dagskrá á Grímuverðlaununum í sjónvarpinu. Ég afrekaði það að sjá bæði sýningu ársins og sýningu ársinns skv. símakosningunni, Draumleik og Óliver! Datt í hug svona meðan ég horfði á verðlaunaafhendinguna, að ég var ekkert spennt fyrir Draumleik áður en ég skellti mér. Var bara stödd fyrir sunnan og mér finnst ómögulegt að eyða tíma mínum í borg óttans ekki í leikhúsferð, þar sem ég er forfallin leikhúsrotta. Þetta var eiginlega það eina sem í boði var svo ég dreif mig á sýninguna og fékk svo miklu meira heldur en ég hafði búist við.
Ég býst þó við að ekki hefðu allir skemmt sér jafnvel. Sumir gera þær væntingar til leikhúss, að hægt sé að labba inn, setjast og svo skemmti leiksýningin manni án þess að maður þurfi nokkuð að gefa af sér. Þetta er ekki rétt.
Án þess að ég sé að segja að farsar og söngleikir séu verra leikhús, er það mín reynsla að þar þarftu miklu minna að hugsa. Þú hallar þér aftur og hlærð, hrífst með tónlistinni  og nýtur "sjóvsins". Sem sannur tónlistarunandi dýrka ég að fara á söngleiki, tónlist hefur nefnilega þessi áhrif á sálina sem mér finnst oft skorta í sjálfu verkinu annars. Það er söguþráður, jújú, tilfinningaþrungin saga, skreytt eins og hin girnilegasta rjómaterta og rennur ljúflega niður. Nammi namm!
En tengslin við vitundina vantar. Þennan hluta sálarinnar sem ég get ekki skilgreint. Ég ímynda mér að þessi hluti sé einhvers staðar aftast og neðst í hnakkanum, vandlega falinn, svo ekki er hægt að draga hannn fram og komast til botns í honum. Ég held að það sé bull að menn skilji tónlist. Maður skilur ekki. Maður finnur.
Eins tilfinningu fékk ég á Draumleik, og ekki bara á þeirri sýningu ef ég á að fara út í það nánar. Davíð Oddsson Súperstar og Pakkið á móti eru líka ágætis dæmi um sýningar sem ég hef farið á í vetur með opnum huga, og þurft að hugsa um á eftir. Ekki um leikarana og sjóvið og söguþráðinn þó að það sé gott útaf fyrir sig. Heldur eitthvað í verkinu, sem fer beint í þennan vel falda hluta sálarinnar, og er þar og neyðir mann til að hugsa um sig. Spurningar sem allir reyna að svara öld eftir öld, tilfinningar sem við könnumst við eða eru okkur framandi. Við erum alltaf að reyna að skilja og finna svör, en ekki í svona tilfellum. Við erum bara að reyna að finna. Og ósjálfrátt öðlumst við skilning í leiðinni. Stundum vitum við meira að segja ekki af því.
Ég held eiginlega meira upp á þessar sýningar heldur en hinar. Það er nefnilega ágætt að fá sér tertu öðru hverju, en sýningar sem fá mann að hugsa eru eins og vatn: eitthvað lífsnauðsynlegt sem maður fær sér á hverjum degi. Og gott líka.

Og þess vegna hlakka ég mikið til þess þegar að leikgerð uppáhaldsskáldsögu minnar, Sölku Völku eftir Halldór Laxness, kemst á fjalir Borgarleikhússins í haust. Hún er tertusneið með glasi af ísköldu vatni. Ójá!

Posted at 12:01 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Wednesday, June 15, 2005
Alveg brilljant réttarkerfi!

Nú hefur Héraðsdómur Reykjarvíkur fallist á kröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að máli sem Auður Laxness höfðaði gegn honum vegna höfundalagabrota við ævisögu hans um Halldór Laxness, verði vísað frá dómi. Ástæðan mun vera að málið sé “vanreifað” og að gallar séu í framsetningu þess.

Réttarkerfið á Íslandi bíður nú enn einu sinni álitshnekki í mínum huga við þessa frétt. Við erum að vísu líklega orðin vön því að mikilvægum málum sé vísað frá eða refsingar fyrir þau séu alveg fáránlegar, vegna þess galla í framsetningu, fyrninga, “óáreiðanlegs vitnisburðar” og alls kyns tylliástæðum. Þó er í mörgum tilfellum enginn vafi á því að þeir ákærðu eru sekir og hafa valdið öðru fólki miklum, kannski óbætanlegum skaða. Ég er hér sérstaklega að tala um kynferðisafbrotamenn. Í hverri viku berast mér fregnir til eyrna af kynferðisafbrotamönnum sem fá hlægilega milda dóma fyrir einhverja þá hryllilegustu glæpi sem hægt er að fremja gegn öðrum manneskjum. Pælið í því hve mikið af fréttum af barnaníðingum við heyrum af þessu litla landi. Þessir menn fá örfáa mánuði í fangelsi, svona helminginn skilorðsbundinn og bamm! Þeir eru aftur komnir á göturnar. Af hverju? Kannski var málið “vanreifað”. Jafnvel fyrnt?

Þetta er að mínu mati galli á íslensku réttarkerfi. Sektin er augljós, refsingin nánast engin. Og þegar einhverjum er refsað, kemur ítrekað fyrir að þeir sem mesta sökina eiga sleppa án þess að nokkur lyfti litlaputta. Nóg er að nefna samráð olíufélagan, í því máli tók einn maður fallið, Þórólfur Árnason þáverandi borgarstjóri. Íslenskir stjórnmálamenn ganga jafnvel svo langt að reyna að gera einn mann að blóraböggul fyrir slæmu gengi eigins flokks (hóst, Dagný framsóknargimbur, hóst hóst!)

Halldór Blöndal vann þá dáð sem sitt síðasta embættisverk sem forseti Alþingis, að fresta umræðu um afnám fyrningar kynferðisafbrota gagnvart börnum. Stundum fórnar maður bara höndum og spyr hvers vegna ráðamenn virðast leggjast á eitt við að gera lítið úr kynferðisafbrotum? Er þeim einfaldlega bara skítsama... eða er eitthvað sem þeir vilja ekki að aðrir viti?

 


Posted at 12:37 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

afmælisbarn dagsins
Afmælin eru endalaus. Endalaus segi ég! Afmælisbarn dagsins í dag er Lína Rut, öðru nafni Sinnep. Óska ég henni gæfu og velfarnaðar um alla framtíð. Kyssikyss...

Posted at 12:32 am by steinunn
Þarftu að tjá þig?  

 
Monday, June 13, 2005
Ein ég sit með ölkrús...
Ég held að ég hafi aldrei gert þetta áður... það er að segja að opna mér bjór á mánudagskvöldi, án nokkurs tilefnis, og drekka hann alein. Held ég stefni með hraðbyr í ræsið.
Svo vona ég að ykkar sumarvinnur séu æðislegar, þar sem mín SÖKKAR og er að drepa allar mannlegar tilfinningar inní mér. Eftir 7 tíma með bilaðri ísvél, óhreinni sjeikvél og manneskju sem lætur mér af og til finnast ég ekki þess verð að vera til, er full ástæða til að drekkja sorgum sínum, éta nammi, horfa á vídjó langt fram á nótt og vorkenna sjálfum sér. Enda er það það sem ég ætla að gera, alein og fjarri siðmenningu, vinum, kærasta og almennilegu fólki. Ég vildi óska að ég væri í annarri vinnu. Ég vildi óska að ég væri á Akureyri. Andskotinn.

Posted at 4:10 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

Next Page