Ég held að ég hafi aldrei gert þetta áður... það er að segja að opna mér bjór á mánudagskvöldi, án nokkurs tilefnis, og drekka hann alein. Held ég stefni með hraðbyr í ræsið.
Svo vona ég að ykkar sumarvinnur séu æðislegar, þar sem mín SÖKKAR og er að drepa allar mannlegar tilfinningar inní mér. Eftir 7 tíma með bilaðri ísvél, óhreinni sjeikvél og manneskju sem lætur mér af og til finnast ég ekki þess verð að vera til, er full ástæða til að drekkja sorgum sínum, éta nammi, horfa á vídjó langt fram á nótt og vorkenna sjálfum sér. Enda er það það sem ég ætla að gera, alein og fjarri siðmenningu, vinum, kærasta og almennilegu fólki. Ég vildi óska að ég væri í annarri vinnu. Ég vildi óska að ég væri á Akureyri. Andskotinn.