"I don't know, I'm just að girl!" - Malibu Stacy (Simpsons)
Steinunn gengur inn i herbergi litlu systur sinnar og glápir á plakat af ískyggilega lítið klæddri BRATZ-dúkku. Hún horfir á níu ára gamla systur sína og reynir að gubba út úr sér einhverju gáfulegu til að koma fram boðskapi sínum:
„Eh, Jórunn... þú veist að það er ekkert sniðugt að vera í svona stuttum bol... ehm, þegar maður er ekki stór" (
hugsar: „Vel sagt Steinunn. Nei!")
Jórunn: „Nei, mér finnst magabolir heldur ekki flottir.
Steinunn (og henni er mjög létt): „Gott gott... og heldur ekki svona stutt pils...?"
Jórunn: „Ja, maður verður alla vega að vera í sokkabuxum. Og svona stórir skór eru heldur ekki flottir."
Til að verðlauna systur mína fyrir að ætla ekki að klæða sig hórulega alveg strax fór ég með henni í sund í dag, keypti handa henni ís og gerði handa henni samloku. Í sundinu benti hún mér á að svona g-strengur eins og ég væri í væri ekki mjög flott. Þar kom vel á vondann...