"Veistu hvað ég var að heyra, á ég að segja þér..."
Mesta rugl sem ég hef heyrt lengi ómaði í eyrum mínum þegar ég og Jórunn vorum á leiðinni í áðurnefnda sundferð um daginn. Það var ekki Jórunn sem stóð fyrir því, heldur var ég með kveikt á útvarpinu á meðan ég keyrði og var að hlusta á Kastljósþáttinn þar sem Eiríkur Jónsson slúðurberi
Hér og Nú og Helga Vala á
Talstöðinni áttust við í umræðu um hvað má setja í blöðin og hvað ekki. Eiríkur Jónsson verður þess heiður aðnjótandi að vera héðan í frá titlaður
"mesta fífl sem ég hef bloggað um síðan ég missti mig yfir formanni frjálshyggjufélagsins sem vill leyfa vændi, fyrir réttu ári", ef einhver man eftir reiðibloggum síðan þá. Eiríkur gerði sitt allra allra besta til að tala alltaf ofaní Helgu þegar hún var að setja fram rök sín, og svo dirfist hann að kalla hana dóna og hræsnara þegar hún benti honum kurteisislega á staðreyndirnar - að hann væri að bulla! Það hefði mátt halda að hann væri að lesa upp úr klisjuorðabók eftir Hannes Hólmstein, það kom nákvæmlega ekkert almennilegt út úr kallræflinum.
Ég ætla ekki að taka upp hanskan fyrir Bubba, hann er eins og réttilega hefur verið bent á, búinn að selja þjóðinni sjálfan sig fyrir löngu. En börnin hans eiga ekki að þurfa að þola þetta. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ég er afar hress með
ákvörðun Iceland Express að selja ekki svona mannskemmandi óþverra. Ég vil einnig sérstaklega benda á bakþanka Jóns Gnarrs um slúður í fréttablaðinu í dag. Frábær pistill.
Einhvers staðar verður að draga mörkin á milli friðhelgi einkalífsins og fréttamennsku á Íslandi. Ég legg til að það verði gert nokkrum kílómetrum fyrir aftan þann stað sem við erum stödd á nú.
E.S. Lenti í lélegasta og jafnframt fyndnasta sölumanni sem ég hef á ævinni heyrt í, núna áðan. Hann hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi skipta frá símanum yfir í OgVodafon. Ég sagði nei. Hann sagði ok og bless. Ekki flóknara en það. Nettur gæi...