If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Saturday, June 11, 2005
Í vikulok
Djöfull er þetta ógeðslega fyndið!
Vil minna fólk á að kommenta í könnuninni fyrir neðan um framsóknardragbítinn ;)
Afmælisbarn dagsins er Jói, sem eyðir daginum í að læra undir stærðfræðipróf á Lundi. Heppinn! Koss og knús til hans.

Lag vikunnar: Feel good inc.
Lesefni vikunnar: Vorblað Munins, SÓ? (safn heimspekiritgerða) og Heimsljós e. Halldór Laxness.

E.S. Hefur einhver annar en ég pælt í því að búa til stórt skilti til að hafa í vinnunni sem á stæði: Það dræpi þig ekki að segja „Góðan daginn sömuleiðis!".

Posted at 11:12 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Friday, June 10, 2005
Daglegt líf og einkunnir
Það á ekki að leyfa mér að horfa á 4 þætti í einu af LOST, einni, klukkan hálf eitt um nótt! Ég var orðin svo hrædd að ég þurfti að horfa á skjáleikinn til að róa mig, nema hvað að það var enginn skjáleikur, bara mynd af Goðafossi og Lagið um Nínu og Geira spilað undir. Furðulegt?

Annars er allt bara rólegt í sveitinni. Er byrjuð bæði í heimilishjálpinni og KS Varmahlíð. Sjoppan hefur ekkert breyst, ennþá undirmönnuð, draslaraleg og stressandi. En kallin sem ég er hjá í heimilishjálpinni er snillingur sem skýtur hettumáfa útum gluggan hjá sér og býður mér viskí í vinnunni. Svo er ég búin að fara út að hlaupa á hverjum degi síðan ég kom heim og stefni á að halda því áfram. Það er eiginlega það mest hressandi sem ég geri á daginn. Fyrir utan að lesa Heimsljós, sem er dásamleg bók!

Og svo koma hér að lokum einkunirnar mínar eins og ég var búin að lofa.

Í þeirri röð sem mér voru þær birtar:

Þýska - 8      (hefði verið gaman að fá níu en ég er samt sátt... og orðin stúdent í þýsku:)
Íþróttir - 5     (Já ég er sátt þar sem að íþróttakennslan í ár var frekar leiðinleg og asnaleg og ég hef gjörsamlega engan áhuga, hvað þá metnað, í íþróttum!)
Uppeldisfræði - 9   (skil ekki þessa einkun... ég þoli ekki uppeldisfræði!)
Stjórnmálafræði - 9    :)
Enska - 9   (Fékk víst 9.5 á prófinu og var með þeim allra bestu. Ekki leiðinlegt! Það borgaði sig greinilega að læra þó að aðrir horfðu á mann eins og ég væri hálfviti og spyrðu: Af hverju að læra fyrir ensku?)
Íslenska - 10 :)
Heimspeki - 9 :)
Sálfræði - 8   (eins og ég vissi alltaf)

Og þannig var nú það.

Posted at 5:02 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Wednesday, June 08, 2005
Framsóknarpælingar - tileinkaðar Andra eins og alltaf!
Könnun! Allir sem lesa þessa síðu að svara með kommenti!

Spurt er:
Hvor er meiri dragbítur á Framsókn?

Kristinn eða Dagný?                              (nánari upplýsingar hérna)

Posted at 3:57 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Monday, June 06, 2005
Stutt núna, meira síðar
Herbergið mitt er fullt af töskum og kössum en mig langar bara að hunsa draslið, skríða upp í rúm, lesa uhnaðslegt nýtkomið vorblað Munins og sakna og sofna.
Takk og bless allir sem ég náði ekki að kveðja áður en ég yfirgaf Akureyri city. Sé ykkur í seinasta lagi miðjan september þegar ég verð nýkomin úr hressandi Tyrklandsreisu. Eins og góðir menn segja iðulega: Ójá!

Sérstakar þakkir að þessu sinni, fá sætu Muninsstrákarnir fyrir sérstakar þakkir. Mjög hressandi og krúttlegt ;)

Og já, smá forskot á einkunnir: 10 í íslensku er staðreynd!
Eins og góðir o.s.frv: Óóóóóóójá!

Posted at 2:48 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Sunday, June 05, 2005
Á lokaspretti próftíðar
Það eru bara afmæli annan hvern dag hérna. Anna Guðrún er nítján ára í dag! Til hamingju skvís ;)
Sálfræðipróf á morgunn og þar með er próftíð búin og ég endanlega farin heim í heiðardalinn að afgreiða pylsur og ís í KS Varmahlíð, heimilishjálpast í sveitinni og mála glugga á samkomuhúsinu. Að ekki sé minnst á hið endalausa verkefni að slá þessa 200 hektara eða svo sem mamma kallar garðinn sinn. Svo ætlar maður að reyna að slappa af smá, lesa, hlusta á gamlar plötur, fara út að hlaupa og hlakka til Tyrklands! Og aldrei að vita nema maður skreppi einu sinni eða tvisvar "heim" :)

E.S. Einkunnir farnar að týnast inn, þær verða birtar þegar allt heila klabbið er komið. Er sátt með það sem komið er.

Posted at 10:30 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Saturday, June 04, 2005
X-V
X-V

Annars er maður bara heima að læra sálfræði og setja niður kartöflur. Vil nota tækifærið og óska mesta krútti Íslands, Ingu Völu Gísladóttur, til hamingju með afmælisdaginn í gær! Ég elska þig sykurpúðinn minn ;) *væmn, væmn, en þú átt það skilið!*

Posted at 8:43 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Wednesday, June 01, 2005
Í minningu hægri handar...
Afleiðingar prófa:

Heimspeki - blýetrun, örkumla hægri hendi og sálarlíf í molum. Erum við leiksloppar æðri máttar eða berum við sjálf ábyrgð á allri vitleysunni í kringum okkur? Samt næstbesta fagið (með stjórnmálafr.)
Enska - Sagan af Rauðhettu hefur beðið álitshnekki, en var hins vegar það eina skemmtilega við þetta próf. Hef komist að því að mér þykja erlend tungumál hundleiðinleg.
Uppeldisfræði - er viðbjóðslega leiðinleg og versta ákvörðun lífs míns var að velja uppeldisfræði í staðinn fyrir fjölmiðlafræði. Ekkert erfitt próf samt, en örkuml hægri handar hefur versnað umtalsvert.

Næst á dagskrá: Íslenska! Ójá! I can see clearly now the rain has gone...

Posted at 4:15 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Sunday, May 29, 2005
Veik?
Í vikunni gerðist það ótrúlega: ég varð tvisvar sinnum bara nokkuð ánægð með eitthvað sem Sjálfstæðismenn gerðu. Ætli ég sé með hita?
1. Ég er spennt fyrir að skoða möguleikana á eyjabyggð í Reykjavík
2. Það er skref í rétta átt að fresta styttingu framhaldsskólanna um eitt ár. En betur má ef duga skal...

Til hamingju með daginn Addi!

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
...eins og það sé strengur í brjóstinu sem hægt væri að nota til að framkalla undurfagra hljóma með varfærni og velvilja. En í staðinn er án nokkurrar skynsamlegrar ástæðu aftur og aftur kippt harkalega í hann svo að í brjóstkassanum bergmálar doooojng og strengurinn er við það að bresta...

Posted at 7:05 am by steinunn
Þarftu að tjá þig?  

 
Saturday, May 28, 2005
Hvað?
Hvað er blogg? Upplýsingamiðstöð fyrir fjölskyldu, vini og kunningja? Leið til að losna við tjáningaþörf og vekja athygli á sjálfum sér? Örvæntingarfull leið til að einhver ranki við sér, sjái hvernig manni líður og tali almennilega við mann? Er þetta alltof mikið aðgengi fyrir hvern sem er? Ömmusystur og vini vina manns? Á að tala undir rós, er það best fyrir alla? Blogg er ekki dagbók. Hversu mikið er maður tilbúinn að láta uppi, hversu langt á að ganga án þess að fá það í bakið? Hversu mikið á maður að láta stjórnast af öðrum?

Ath: Þetta er skrifað í flýti í fimm mínútna hléi frá heimspeki. Staðan akkúrat núna: Ágústínus kirkjufaðir er ekki alveg upp á pallborðið, vona að þetta lagist þegar ég er búin með miðaldirnar.

„Það eina sem ég veit er að ég veit ekki neitt"
- Sókrates

Posted at 3:05 pm by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

 
Friday, May 27, 2005
Stjórnmálafræði
Það að trassa að læra fyrir stjórnmálafræðipróf vegna þess að lokaþátturinn á American Idol (sem ég hef nota bene ekkert horft á í vetur, í alvöru) er í sjónvarpinu, og leiðast svo smámsaman út í þá vitleysu að horfa á klám-rugl-drama-brjálæðið Mile High og geta ekki slúttað þessu og staðið upp þegar einhver spennuþáttur sem ég veit ekki einu sinni hvað heitir byrjar og fara ekki að sofa fyrr en hálf eitt...

   gæti gefið ykkur þá hugmynd að ég hafi ekki gaman af stjórnmálafræði...

Sem er alrangt! Ég elska hana.
Bara ekki kenningar um íhaldsstefnuna og sögu stjórnmálaflokka á Íslandi... og fullt af öðru dóti.
En þetta er samt búið að vera skemmtilegur áfangi og mér leiðist að vera búin í honum.
Btw, prófið gekk sæmilega.

Til minningar um stjórnmálafræðiáfangann koma punktar úr skemmtilegasta verkefninu um hræðilegasta efnið. Nei, þetta er ekki fyrirlesturinn um Sjálfstæðisflokkinn, heldur smá fróðleiksmolar um The Westboro Baptist Church (Topeka, Kansas) 

Vissir þú ...
      - Að þeir í The Westboro Baptist Church kenna biblíuna og predika gegn syndurum (aðallega samkynhneigðum, sem þeir hata) ?
      - Að þeir álíta samkynhneigð stærstu ógn Ameríku og sjálfa sig síðustu og einu von Bandaríkjanna?
      - Að „Einu leyfinlegu kynferðisathafnirnar fara fram í hjónarúminu. Allar aðrar kynferðislegar athafnir eru hórdómur sem hefnt verður fyrir með eilífum kvölum í steikjandi vítislogum”
      - Að:   Fags live filthy, unhealty, dangerous, unhappy, and in many cases, violent lives. "
      -
Að Biblían er þeirra handbók. Hún hefur lítið breyst í aldanna rás og því er svolítið undarlegt að miða við gildin sem voru við lýði á tímum Móses (þá var samkynhneigð dauðarefsing).
      - Að þeir predika hatur af því að biblían gerir þaðþ
      - Að guð elskar víst ekki alla...?
      - Að Jesú dó ekki fyrir syndir allra?
      - Að öllum verði sko ekki fyrirgefið þarna hinum megin...?
      - Að þeir segja að Ameríka sé alveg komin út á brúnina í siðferðismálum og fordæma réttindabaráttu samkynhneigðra.
      - Að þeir líkja skrúðgöngum samkynhneigðra við það ef að nauðgarar og morðingjar myndu flykkjast í kröfugöngum fyrir réttindum sínum til þess að nauðga og drepa, því samkynhneigð er með mestu hugsamlegum syndum.
      - Að atburðirnir 11. september voru hefndaraðgerðir guðs þar sem hann notaði hina vondu fylgismenn Osama bin Laden til að refsa enn verra fólki. Ameríkanar áttu að líta á þetta sem viðvörun en þeir eru greinilega eitthvað tregir þar sem þeir halda áfram að haga sér eins og lostafullu syndararnir sem þeir eru...
      - Að þeir mæta í jarðarfarir baráttumanna fyrir réttindum samkynhneigðra og hafa mótmælastöðu (með skiltum og slagorðum eins og: GOD HATES FAGS og NO FAGS IN HEAVEN!) til að minna ættingja og vini á hvað er í vændum (vítislogana) og að þau þurfi að iðrast fyrir að vera eins og þau eru.
      - Að AIDS er – eins og 11. september – bara aðferð guðs til að refsa vondu fólki (þar sem að þeir tengja AIDS helst við homma). Í gegnum veraldarsöguna hefur guð neyðst til þess að drepa saklaust fólk til þess að geta refsað öðrum sem lifðu. Gott dæmi er í sögunni af því þegar hann drap alla frumburði Eygipta í sögunni af því þegar Móse barðist fyrir því að Faraó leyfði Gyðingum að fara til fyrirheitna landsins. Svona sambærilegir atburðir gerast enn í dag, reiði guðs birtist í ýmsum myndum, þar á meðal AIDS. Óhjákvæmilegur fylgifiskur þessa er dauði sakleysingja (þar á meðal kornabarna)
      - Að hjá þeim er Asía= barnavændi og heiðindómur
      - Að þeir hata Svía
      - Að þeir gáfu út þessar yfirlýsingar eftir flóðbylgjurnar í Asíu um áramótin (meðal látinna og týndra voru yfir 20.000 Svíar og 3000 Bandaríkjamenn). Bein þýðing:
„Sora-Svíar fóru til Thailands – paradís barnavændis – til að nauðga og svívirða lítil thailensk börn.” Önnur bein þýðing: „Við vonum innilega og biðjum þess að allir 20.000 Svíarnir séu dauðir, að lík þeirra liggi á harðri jörðinni eða í fjöldagröfum eða séu fljótandi út á opnu hafi og séu fæða hákarla og fiska eða í maga krókudíla.”
      - Að þetta stendur á síðunni þeirra um Svíakonung:
" The popinjay King of Sweden - a moral titmouse in the plumage of a peacock, who lives lavishly with his lazy, horny kids on Sweden's largest social security check - is King of Fags, King of Zoophiles, King of Pedophiles, and King of Incestuous Perverts."
      - Páfinn er s.s.  í helvíti. „Kaþólikkar eru versta og ofbeldisfyllsta fólk jarðar og kirkjur þeirra eru stútfullar af ógeðslegum kynvillinga-prestum. Í tíð Jóhannesar Páls páfa annars, varð kaþólska kirkjan að Kirkju hinna heilögu Pedofíla." að þeirra sögn...

Já, afskaplega gott fólk hér á ferð.
 

Posted at 4:47 am by steinunn
Lifi tjáningarfrelsið!  

Previous Page Next Page