|
Svo vona ég að ykkar sumarvinnur séu æðislegar, þar sem mín SÖKKAR og er að drepa allar mannlegar tilfinningar inní mér. Eftir 7 tíma með bilaðri ísvél, óhreinni sjeikvél og manneskju sem lætur mér af og til finnast ég ekki þess verð að vera til, er full ástæða til að drekkja sorgum sínum, éta nammi, horfa á vídjó langt fram á nótt og vorkenna sjálfum sér. Enda er það það sem ég ætla að gera, alein og fjarri siðmenningu, vinum, kærasta og almennilegu fólki. Ég vildi óska að ég væri í annarri vinnu. Ég vildi óska að ég væri á Akureyri. Andskotinn. |
| Steinunn June 14, 2005 11:17 PM PDT þú hefur augljóslega ekki gert mikið af því að vinna þjónustustörf í skítugri sjoppu í útnára alheimsins... | ||
| Katana June 14, 2005 08:49 AM PDT *ræskj* Ég vinn í fiski! ég er að vinna við að raða dauðum fiskum á færiband eða orma og beinhreinsa þá! að standa í 8 tíma á dag fyrir framan færiband og sjá það í hvert sinn er þú lokar augunum þegar þú kemur heim... Það er mannskemmandi og drepur allar tilfinningar! :) | ||
| Leave a Comment: |