|
Nú hefur Héraðsdómur Reykjarvíkur fallist á kröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að máli sem Auður Laxness höfðaði gegn honum vegna höfundalagabrota við ævisögu hans um Halldór Laxness, verði vísað frá dómi. Ástæðan mun vera að málið sé “vanreifað” og að gallar séu í framsetningu þess. Réttarkerfið á Íslandi bíður nú enn einu sinni álitshnekki í mínum huga við þessa frétt. Við erum að vísu líklega orðin vön því að mikilvægum málum sé vísað frá eða refsingar fyrir þau séu alveg fáránlegar, vegna þess galla í framsetningu, fyrninga, “óáreiðanlegs vitnisburðar” og alls kyns tylliástæðum. Þó er í mörgum tilfellum enginn vafi á því að þeir ákærðu eru sekir og hafa valdið öðru fólki miklum, kannski óbætanlegum skaða. Ég er hér sérstaklega að tala um kynferðisafbrotamenn. Í hverri viku berast mér fregnir til eyrna af kynferðisafbrotamönnum sem fá hlægilega milda dóma fyrir einhverja þá hryllilegustu glæpi sem hægt er að fremja gegn öðrum manneskjum. Pælið í því hve mikið af fréttum af barnaníðingum við heyrum af þessu litla landi. Þessir menn fá örfáa mánuði í fangelsi, svona helminginn skilorðsbundinn og bamm! Þeir eru aftur komnir á göturnar. Af hverju? Kannski var málið “vanreifað”. Jafnvel fyrnt? Þetta er að mínu mati galli á íslensku réttarkerfi. Sektin er augljós, refsingin nánast engin. Og þegar einhverjum er refsað, kemur ítrekað fyrir að þeir sem mesta sökina eiga sleppa án þess að nokkur lyfti litlaputta. Nóg er að nefna samráð olíufélagan, í því máli tók einn maður fallið, Þórólfur Árnason þáverandi borgarstjóri. Íslenskir stjórnmálamenn ganga jafnvel svo langt að reyna að gera einn mann að blóraböggul fyrir slæmu gengi eigins flokks (hóst, Dagný framsóknargimbur, hóst hóst!) Halldór Blöndal vann þá dáð sem sitt síðasta embættisverk sem forseti Alþingis, að fresta umræðu um afnám fyrningar kynferðisafbrota gagnvart börnum. Stundum fórnar maður bara höndum og spyr hvers vegna ráðamenn virðast leggjast á eitt við að gera lítið úr kynferðisafbrotum? Er þeim einfaldlega bara skítsama... eða er eitthvað sem þeir vilja ekki að aðrir viti? |
| Addi June 15, 2005 06:26 PM PDT Ég er svo sammála þér! Það ætti að afnema þessi helvítis fyrninga-lög!!! Ég meina, ef einhver kemst upp með það að misnota barn og síðan takast það að þagga það niður í segjum 10 ár, er verknaðurinn þá eitthvað réttlætanlegri? NEI! Það er alltaf verið að tala um að fórnarlömb hljóti lífstíðarskaða af þessu. Hvernig væri þá að fara að dæma samkvæmt því!!!! sorry... missti mig aðeins. En ég veit að Anna Gunna er sammála mér ;) | ||
| Leave a Comment: |