Entry: neyðarkall, neyðarkall! Sunday, June 19, 2005



Það er komin ný lína í vinnuklæðnaði í KS Varmahlíð. Síðkjólalínan - alla vega fyrir þá sem heita Steinunn og eru síðust til að ná sér í föt. Hinir fá boli í þokkalega eðlilegri stærð. En vinnufötin mín eru sem sagt svo stór að ég gæti komið öllum íbúum Lundar fyrir í þeim með mér sjálfri. Og rauð. Einmitt minn litur. Nei.

Í dag mætti ég klukkan 9. Ég stóð í 7 tíma og afgreiddi og settist aldrei á þeim tíma. Borðaði eina kleinu. Svo var vaktin búin, ég settist niður í fimm mínútur og fékk mér aðra kleinu. Vann svo í aukaklukkutíma. Svo fékk ég mér STÓRAN ÍS á kostnað kaupfélagsins.
Ég brilleraði í dag, henti óafgreiddum pöntunum óvart og talaði reiprennandi ensku við Íslendinga. Góð Steinunn. Ég stefni ótrauð á að verða starfsmaður mánaðarins! Ætli ég endi líka ekki uppi sem eini starfsmaðurinn, þar sem samstarfsfélagar mínir eru iðnir við að afsaka sig frá vinnu með því að fara í hjartaþræðingu eða grípa jafnvel til róttækra aðgerða eins og að flýja til Grímseyjar (já, þetta er svona mögnuð vinna...) Megnið af hinum samstarfsmönnunum mæta svo annað hvort þunnir eða bara mæta ekki. Ég elska vinnuna mína. Nei.

Ég nenni ekki út að hlaupa í kvöld.

Plúsar: hmmmm... Lost er í sjónvarpinu annað kvöld?

SOS!!!!!

E.S. Maður vikunnar: Kristinn H. Gunnarsson, hann er svo svalur!
E.E.S. Ég er kannski soddans einfeldingur, en ég velti því fyrir mér af hverju ég sé alltaf að heyra fréttir af því að verið sé að rífa hús í Ísrael/Palestínu. Hvað er með það að rífa sífellt niður húsin, bara af því að fólk flyst á brott? Eru húsin byggð til að endast bara nokkur ár og þarf þá að rífa þau? Getur fólk ekki búið í þessum húsum, jafnvel þótt að fólk sem aðhyllist önnur trúarbrögð hafa búið þar áður (er ekki bara hægt að þrífa ágætlega áður en maður flytur inn?) Eitthvað hefur gleymst að uppfræða mig, því ég skil þetta ekki alveg. Nema þetta sé bara svona venjulega heimskulegt, sem gæti alveg verið...

   4 comments

____ Rut
June 21, 2005   09:37 PM PDT
 
ok, þú allavega hélst þig við enskuna þegar þú varst að tala við íslendingana.

Samstarfsfélagi minn afgreiddi íslendinga, nema í lokin kom: „please sign here, you want your receipt?“
hehehe.. :)
Steinunn
June 20, 2005   10:15 PM PDT
 
Grænt tjald væri alla vega skárra en rautt...
Elín
June 20, 2005   07:40 PM PDT
 
Þú hefur fengið tjald... hehe.. Ég átti einu sini svona grænt tjald.
Magnila
June 19, 2005   11:09 PM PDT
 
bara anda inn og anda út... þetta verður fljótt að líða... bara nokkrir daga í TYRKLAND

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments