|
Ég hef yfirgefið Sódómu og haldið á heimaslóðir. Helgin var áhugaverð, skemtileg og ógnvekjandi. En aðallega full af væntumþykju og vináttu ásamt slatta af rigningu.
Gist var á Njálsgötunni hjá Helgu báðar næturnar (þó mér tækist að sofna á tveimur öðrum stöðum. Hvernig, skulum við ekki fara nánar útí). Hins vegar var byrjað á því að fara í Kringluna og sleppa sér í tónlistarinnkaupum. Keypti mér nýjustu diskana með Gorillaz og Coldplay, Demon Days og X&Y, Rearviewmirror (greatest hits 1991-2003) með Pearl Jam og Original Cast Recording - The Phantom of the Opera. Keypti líka Francis the mute með The Mars Volta fyrir Sindra, með það fyrir augum að stela disknum af honum oft og mörgum sinnum. Ég gerði einnig heiðarlega tilraun til að kaupa mér buxur. Komst í framhaldi að því að ég er afbrigðileg, þar sem ég vil ekki ganga í buxum sem hylja ekki einu sinni skapahárin, og það virðast ekki vera til öðruvísi buxur í fataverslunum Reykjavíkur. Keypti mér í staðinn einn bol.
Á laugardaginn labbaði ég upp og niður Laugarveginn í úrhellisrigningu og lopapeysu. Hún varð blaut og hárið á mér fallega liðað, sem sagt dökkar hliðar og bjartar hliðar. Keypti mér peysu í Nonnabúð, húfu í rauðakross-búðinni, Ok Computer með Radiohead í 12 tónum og buxnaleitin mikla endaði á eina rétta staðnum... í vinnufatabúðinni. Já já, ég er bóndi. En ég hyl þó alla vega á mér rassgatið!
Svo var heilsað upp á Frey, Auði og Freyju Sigrúnu. Freyja varð fyrst ekkert sátt við að vera trufluð svona dónalega í miðri mjólkurgjöf, en hrestist fljótt. Hún gubbaði á mömmu/ömmu sína en var hin ánægðasta hjá mér. Feis, haha :)
Á föstudagskvöldinu var haldið villt þriggja manna partí á Njálsgötunni. Svipað var upp á teningnum á laugardagskvöldinu, nema að ég var edrú, við bættist félagsskapur Erlu og gleðskapurinn barst út á stræti borgarinnar þar sem dyraverðir miðborgarinnar reyndust mér vel. Af þeim þremur skemmtistöðum sem ég prófaði, þá vinnur Kaffibarinn fyrir að vera flottur staður. Prikið er ágætt, en Grand rokk er sveittur og furðulegur staður. Helga hitti samt Eirík Hauks þar og heilsaði honum eins og þau væru aldavinir. Þau eru bæði nett. Reyndar var ég ekki lengi í bænum sökum þreytu. Tek þetta allt saman með trompi næst.
  
Þessar flottu myndir tók Nína í gærkvöldi, vona að hún myrði mig ekki svefni þó ég birti þær hér. Vil nota tækifærið og þakka henni og Helgu fyrir helgina.
Meira síðar. Góða nótt.
|