|
Ég ætla ekki að taka upp hanskan fyrir Bubba, hann er eins og réttilega hefur verið bent á, búinn að selja þjóðinni sjálfan sig fyrir löngu. En börnin hans eiga ekki að þurfa að þola þetta. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ég er afar hress með ákvörðun Iceland Express að selja ekki svona mannskemmandi óþverra. Ég vil einnig sérstaklega benda á bakþanka Jóns Gnarrs um slúður í fréttablaðinu í dag. Frábær pistill. Einhvers staðar verður að draga mörkin á milli friðhelgi einkalífsins og fréttamennsku á Íslandi. Ég legg til að það verði gert nokkrum kílómetrum fyrir aftan þann stað sem við erum stödd á nú. E.S. Lenti í lélegasta og jafnframt fyndnasta sölumanni sem ég hef á ævinni heyrt í, núna áðan. Hann hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi skipta frá símanum yfir í OgVodafon. Ég sagði nei. Hann sagði ok og bless. Ekki flóknara en það. Nettur gæi... |
| Roof Roof Rubber Tin August 31, 2005 04:51 PM PDT Roof Roof Rubber Tin | ||
| Ausa July 1, 2005 02:22 PM PDT Eg er svo anaegd med tennan solumann. Toli ekki tegar folk er ad reyna ad pranga einhverju inn a mann og virdist ekki skilja ordid NEI. | ||
| Leave a Comment: |