Viltu Póló?
Nýtt upphaf
      <description>Aldrei framar mun verða bloggað á þessari síðu.
Ég vil þakka þeim sem lásu,
góðar stundir.
Ég blogga nú í Kommúnu. Kíkið á það.</description>
"Veistu hvað ég var að heyra, á ég að segja þér..."
      <description>Mesta rugl sem ég hef heyrt lengi ómaði í eyrum mínum þegar ég og Jórunn vorum á leiðinni í áðurnefnda sundferð um daginn. Það var ekki Jórunn sem stóð fyrir því, heldur var ég með kveikt á útvarpinu á meðan ég keyrði og var að hlusta á Kastljósþáttinn þar sem Eiríkur Jónsson slúðurberi Hér og Nú og Helga Vala á Talstöðinni áttust við í umræðu um hvað má setja í blöðin og hvað ekki. Eiríkur Jónsson verður þess heiður aðnjótandi að vera héðan í frá titlaður "mesta fífl sem ég hef bloggað um síðan ég missti mig yfir formanni frjálshyggjufélagsins sem vill leyfa vændi, fyrir réttu ári", ef... (more)</description>
"I don't know, I'm just að girl!" - Malibu Stacy (Simpsons)
      <description>Steinunn gengur inn i herbergi litlu systur sinnar og glápir á plakat af ískyggilega lítið klæddri BRATZ-dúkku. Hún horfir á níu ára gamla systur sína og reynir að gubba út úr sér einhverju gáfulegu til að koma fram boðskapi sínum:
„Eh, Jórunn... þú veist að það er ekkert sniðugt að vera í svona stuttum bol... ehm, þegar maður er ekki stór" (hugsar: „Vel sagt Steinunn. Nei!")
Jórunn: „Nei, mér finnst magabolir heldur ekki flottir.
Steinunn (og henni er mjög létt): „Gott gott... og heldur ekki svona stutt pils...?"
Jórunn: „Ja, maður verður alla vega að vera í sokkabuxum. Og svona... (more)</description>
Sódóma
      <description>Ég hef yfirgefið Sódómu og haldið á heimaslóðir. Helgin var áhugaverð, skemtileg og ógnvekjandi. En aðallega full af væntumþykju og vináttu ásamt slatta af rigningu.
Slæm hugmynd
      <description>Í fréttum 16. júní: Breska lögreglan óttast að börnum frá Afríku sé smyglað til landsins til þess að fórna þeim við trúarlegar athafnir. Fyrr í þessum mánuði voru 2 afrískar konur dæmdar fyrir að pynta átta ára gamalt munaðarlaust barn frá Angóla og hafa ætlað að henda henni í sjóinn, þar sem þær trúðu því að barnið væri haldið illum anda. Breska löggan hefur ennfremur enn ekki borið kennsl á lík drengs sem fannst fyrir fjórum árum höfuðlaust á reki í ánni Thames, talið er að hann hafi verið myrtur í tengslum við trúarlegar athafnir.
Í fréttum í fyrradag: Heittrúarmenn mótmæltu ákaft á... (more)</description>
neyðarkall, neyðarkall!
      <description>Það er komin ný lína í vinnuklæðnaði í KS Varmahlíð. Síðkjólalínan - alla vega fyrir þá sem heita Steinunn og eru síðust til að ná sér í föt. Hinir fá boli í þokkalega eðlilegri stærð. En vinnufötin mín eru sem sagt svo stór að ég gæti komið öllum íbúum Lundar fyrir í þeim með mér sjálfri. Og rauð. Einmitt minn litur. Nei.
Í dag mætti ég klukkan 9. Ég stóð í 7 tíma og afgreiddi og settist aldrei á þeim tíma. Borðaði eina kleinu. Svo var vaktin búin, ég settist niður í fimm mínútur og fékk mér aðra kleinu. Vann svo í aukaklukkutíma. Svo fékk ég mér STÓRAN ÍS á kostnað kaupfélagsins.
Ég... (more)</description>
Leikhús sem fær mann til að hugsa
      <description>Var að fylgjast með stórskemmtilegri dagskrá á Grímuverðlaununum í sjónvarpinu. Ég afrekaði það að sjá bæði sýningu ársins og sýningu ársinns skv. símakosningunni, Draumleik og Óliver! Datt í hug svona meðan ég horfði á verðlaunaafhendinguna, að ég var ekkert spennt fyrir Draumleik áður en ég skellti mér. Var bara stödd fyrir sunnan og mér finnst ómögulegt að eyða tíma mínum í borg óttans ekki í leikhúsferð, þar sem ég er forfallin leikhúsrotta. Þetta var eiginlega það eina sem í boði var svo ég dreif mig á sýninguna og fékk svo miklu meira heldur en ég hafði búist við. 
Ég býst þó við að... (more)</description>
Alveg brilljant réttarkerfi!
Nú hefur Héraðsdómur Reykjarvíkur fallist á kröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að máli sem Auður Laxness höfðaði gegn honum vegna höfundalagabrota við ævisögu hans um Halldór Laxness, verði vísað frá dómi. Ástæðan mun vera að málið sé “vanreifað” og að gallar séu í framsetningu þess.
Réttarkerfið á Íslandi bíður nú enn einu sinni álitshnekki í mínum huga við þessa frétt. Við erum að vísu líklega orðin vön því að mikilvægum málum sé vísað frá eða refsingar fyrir þau séu alveg fáránlegar, vegna þess galla í framsetningu, fyrninga, “óáreiðanlegs vitnisburðar” og alls kyns... (more)</description>
afmælisbarn dagsins
      <description>Afmælin eru endalaus. Endalaus segi ég! Afmælisbarn dagsins í dag er Lína Rut, öðru nafni Sinnep. Óska ég henni gæfu og velfarnaðar um alla framtíð. Kyssikyss...</description>
Ein ég sit með ölkrús...
      <description>Ég held að ég hafi aldrei gert þetta áður... það er að segja að opna mér bjór á mánudagskvöldi, án nokkurs tilefnis, og drekka hann alein. Held ég stefni með hraðbyr í ræsið.
Svo vona ég að ykkar sumarvinnur séu æðislegar, þar sem mín SÖKKAR og er að drepa allar mannlegar tilfinningar inní mér. Eftir 7 tíma með bilaðri ísvél, óhreinni sjeikvél og manneskju sem lætur mér af og til finnast ég ekki þess verð að vera til, er full ástæða til að drekkja sorgum sínum, éta nammi, horfa á vídjó langt fram á nótt og vorkenna sjálfum sér. Enda er það það sem ég ætla að gera, alein og fjarri... (more)</description>